Íþróttafréttamaðurinn Hjörtur Hjartarson útskýrði á Twitter af hverju hann og Logi Ólafsson stóðu svona rosalega þétt saman, bókstaflega, í síðasta þætti af Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport.
Það vakt athygli sjónvarpsáhorfenda að hann og Logi voru alveg upp við hvorn annan meðan þeir fóru yfir það bitastæðasta í 16. umferð Pepsi-deildarinnar.
Útskýringin felst í biluðum hljóðnema Loga sem gerði það að verkum að þeir félagar þurftu að sameinast í notkun á hljóðnema Hjartar!
Þegar hljóðneminn hans Loga er bilaður þurfa menn að standa þétt saman. #Pepsi365 pic.twitter.com/VZ3ke4uYNl
— Hjörtur Hjartar (@hjorturh) August 24, 2016
Fólk var að velta þessu fyrir sér meðan á þætti stóð:
Geta Logi og Hjörtur staðið aðeins nær hver öðrum ? Truflar mig þessi lengd á milli þeirra #pepsi365 #bromance
— Hugi Halldórsson (@hugihall) August 22, 2016
Voðalega standa menn þétt saman í setti #stuðmenn #pepsi365
— Gauti Guðmundsson (@gautig1) August 22, 2016
Standa Logi Ólafs og @hjorturh ekkert rosalega nálægt hvor öðrum 😂
— Ingimar H. Finnsson (@ingimarh) August 22, 2016
Athugasemdir