Sunderland er nálægt því að fá hægri bakvörðinn Javi Manquillo á láni frá Atletico Madrid.
Hinn 22 ára gamli Manquillo var í láni hjá Liverpool á þarsíðasta tímabili.
Á síðasta tímabili var Manquillo hins vegar á láni hjá Marseille í Frakklandi.
Hinn 22 ára gamli Manquillo var í láni hjá Liverpool á þarsíðasta tímabili.
Á síðasta tímabili var Manquillo hins vegar á láni hjá Marseille í Frakklandi.
Sunderland hefur líka áhuga á Alfie Mawson, miðverði Barnsley.
David Moyes, stjóri Sunderland, er í leit að liðsstyrk áður en félagaskiptaglugginn lokar en hann hefur sjálfur sagt að fallbarátta sé framundan hjá liðinu í vetur.
Athugasemdir