Níu leikmenn sem voru í íslenska landsliðshópnum á Evrópumótinu í Frakklandi hafa fært sig um set eftir að mótinu lauk. Þess utan fór Arnór Ingvi Traustason í austurríska liðið Rapid Vín skömmu fyrir mót. Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari hefur sagt að á heildina litið séu menn á talsvert betri stöðum í dag en þeir voru fyrir mót.
Ragnar Sigurðsson var í gær kynntur sem nýr leikmaður Fulham í ensku B-deildinni en hann kemur frá Krasnodar í Rússlandi. Ragnar var besti leikmaður Íslands á Evrópumótinu.
Jóhann Berg Guðmundsson tók skrefið upp í ensku úrvalsdeildina þegar hann yfirgaf Charlton og gekk í raðir Burnley. Jóhann hefur komið inn af bekknum í fyrstu tveimur leikjum Burnley í úrvalsdeildinni.
Jón Daði Böðvarsson fór frá Kaiserslautern yfir til Wolves. Hann smellpassar í Championship-deildina og er þegar í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum.
Ari Freyr Skúlason fór úr danska boltanum og gekk í raðir Lokeren í Belgíu. Þar fær hann félagsskap frá öðrum landsliðsmanni, Sverri Inga Ingasyni.
Rúnar Már Sigurjónsson fór frá Sundsvall í Svíþjóð og yfir í sterkari deild. Rúnar er nú hjá Grasshopper í Sviss.
Hjörtur Hermannsson skrifaði undir þriggja ára samning við danska félagið Bröndby en hann var í herbúðum PSV Eindhoven þar sem hann hafði ekki fengið tækifæri með aðalliðinu.
Hannes Þór Halldórsson fór frá NEC Nijmegen eftir eitt ár í Hollandi og gekk í raðir Randers þar sem Ólafur Kristjánsson er við stjórnvölinn.
Hörður Björgvin Magnússon er kominn í enska boltann en hann gekk í raðir Bristol City sem er í ensku B-deildinni. Hörður fer vel af stað hjá Bristol.
Athugasemdir