Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mið 24. ágúst 2016 20:23
Þorsteinn Haukur Harðarson
Orri: Of stórt tap
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
"Mér fannst þetta allt of stórt tap. Í fyrri hálfleik fáum við á okkur þrjú mörk en það var ekkert annað í gangi hjá þeim. Valsliðið er feikilega gott en mér fannst við gefa þeim of ódýr mörk í fyrri hálfleik," sagði Orri Þórðarson, þjálfari FH, eftir 4-0 tap gegn Val í Pepsídeild kvenna í kvöld.

Lestu um leikinn: FH 0 -  4 Valur

"Í stöðunni 1-0 áttum við 15-20 mínútur sem voru virkilega fínar og mér fannst við vera ofan á. Svo fengum við á okkur tvö mörk undir lok fyrri hálfleiks."

"Mér fannst seinni hálfleikurinn fínn að mörgu leyti, við fengum sénsa og vorum að setja á þær pressu en við náðum ekki að skora."

FH liðið átti fín færi en náði ekki að gera sér mat úr þeim. "Það vantar þessar úrslitasendingar þegar við erum komnar fram. Það vantar ekki mikið upp á en ég er sammála því að við vorum að fá vænlegar stöður sem við áttum að nýta betur."

FH var að spila ágætlega eftir fyrsta mark Vals og því mikið áfall að fá á sig tvö mörk undir lok fyrri hálfleiks og því 3-0 undir í hálfleik.

"Það er elsti frasinn í bransanum að mörk breyta leikjum og annað mark Vals var eins og blaut tuska í andlitið. Stelpurnar sýndu samt að þær hætta aldrei og reyndu að setja mark."

FH náði að skora eitt mark í fyrri hálfleik en markið var dæmt af.

"Ég var ekki í neinni aðstöðu til að sjá þetta. Hann flaggaði rangstöðu og ég verð að sjá þetta betur í sjónvarpinu,"

Blaðamanni sýndist dómarinn flagga brot í umræddu marki FH en Orri var ekki sammála því. "Ég get ekki ímyndað mér að hann hafi flaggað brot því mér fannst minn leikmaður fara í boltann þegar þær skullu saman. Markmenn eiga ekki að vera heilagar kýr inn í vítateig."
Athugasemdir
banner
banner