Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 24. ágúst 2016 17:15
Magnús Már Einarsson
Robbie Keane hættur að spila með írska landsliðinu
Mynd: Getty Images
Robbie Keane, framherji LA Galaxy, hefur ákveðið að hætta að spila með írska landsliðinu.

Keane spilar kveðjuleik sinn gegn Óman í næstu viku.

Keane er 36 ára gamall en hann er markahæsti leikmaðurinn í sögu Íra með 67 mörk í 145 landsleikjum.

Á EM í sumar var Keane á varamannabekknum en hann kom inn á í leikjum gegn Svíum og Belgum.

„Þetta hefur verið yndislegt ferðalag með írska landsliðinu í 18 ár eða síðan ég spilaði minn fyrsta leik árið 1998," sagði Keane.
Athugasemdir
banner
banner
banner