Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   mið 24. ágúst 2016 21:32
Mist Rúnarsdóttir
Sóley: Höfum verið ferskari
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
„Við byrjuðum af krafti en svo gáfum við allt of mikið eftir og þær nýttu sér það og skoruðu eiginlega verðskuldað mark í lokin," sagði Sóley Guðmundsdóttir, fyrirliði ÍBV, eftir tap á útivelli gegn toppliði Stjörnunnar.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  1 ÍBV

ÍBV náði forystu í leiknum með einstaklingsframtaki hjá Cloe Lacasse sem hljóp með boltann frá eigin vallarhelmingi áður en hún skoraði framhjá Berglindi í Stjörnumarkinu.

„Cloe sprengdi náttúrulega upp vörnina. Þetta er það sem hún gerir best og við áttum alveg skilið að komast yfir. Það hefði verið gott að halda þessu en svo fór sem fór og það er lítið hægt að segja við þessu."

Það dró af Eyjaliðinu eftir því sem leið á leikinn en Sóley vildi ekki afsaka liðið sitt með þreytu.

„Það ætti ekki að vera en við höfum verið ferskari. Við eigum ekkert að vera þreyttar. Það er vika síðan að síðasti leikur var og maður á að ná sér eftir það."

Þrátt fyrir tap ÍBV í kvöld hefur liðið verið á fínu skriði og Sóley segir markmiðið vera að ná 3. sætinu en til þess þarf liðið nú að vinna upp 6 stiga forskot Vals.

„Þetta lítur bara ágætlega út og við eigum alveg að geta endað í 3.sæti jafnvel þannig að við bara stefnum eins hátt og hægt er."
Athugasemdir
banner
banner