Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 24. ágúst 2016 12:45
Magnús Már Einarsson
Umboðsmaður Balotelli vill koma honum til Man Utd
Balotelli í leik með Liverpool.
Balotelli í leik með Liverpool.
Mynd: Getty Images
Samkvæmt frétt Gazzetta á Ítalíu þá er Mino Raiola, umboðsmaður Mario Balotelli, að reyna að koma leikmanninum til Manchester United.

Balotelli má fara frá Liverpool en eftirspurnin hefur ekki verið sérstaklega mikil eftir kröftum hans.

Palermo og Chievo hafa áhuga á Balotelli og þá er Crystal Palace einnig að fylgjast með gangi mála.

Raiola vill hins vegar koma Balotelli til Manchester United þar sem Jose Mourinho er við stjórnvölinn.

Mourinho var þjálfari Balotelli hjá Inter á sínum tíma og hann þekkir leikmanninn vel. Raiola er sagður ætla að sannfæra Mourinho um að kaupa Balotelli en það yrðu ein óvæntustu félagaskipti síðari ára ef þau myndu ganga í gegn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner