lau 24. september 2016 19:15
Jóhann Ingi Hafþórsson
Jurgen Klopp: Gáfum Hull aldrei séns
Jurgen Klopp
Jurgen Klopp
Mynd: Getty Images
„Þetta var frábær fyrri hálfleikur, alveg sama hvert við horfum. Við gáfum Hull aldrei séns," sagði Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool eftir 5-1 sigur á Hull í dag.

Markið sem Liverpool fékk á sig fór örlítið í taugarnar á Þjóðverjanum.

„Ég varð örlítið reiður yfir markinu sem við fengum á okkur, það hefði verið gaman að halda hreinu svona einu sinni. Við vorum svo mjög fagmannlegir í seinni hálfelik."

Klopp hrósaði Adam Lallana eftir leik en Lallana hefur spilað eins og engill á tímabilinu.

„Lallana er frábær leikmaður og ég þarf ekki að kenna honum fótbolta en mig langar ekki að tala of mikið um einstaka leikmenn. Liðið allt stóð sig virkilega vel," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner