Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Aftureldingar, var svekktur eftir 3-1 tap fyrir ÍR í dag.
Með tapinu varð ljóst að Afturelding fer ekki upp um deild og verður liðið ennþá í 2. deildinni. Úlfur var ekki sáttur við byrjunina í leiknum í dag ásamt því að hann hefði viljað sjá fleiri færi sköpuð.

Lestu um leikinn: ÍR 3 - 1 Afturelding
„Ég hefði viljað byrja betur, við lentum snemma undir en svo náum við að gera þetta að leik með að minnka muninn."
„Ég hefði viljað skapa fleiri færi í seinni hálfleik."
Aðspurður hvað hafði farið úrskeiðis í sumar, bendir Úlfur á EM.
„EM fríið fór ekki vel í okkur, við byrjuðum vel en svo lendum við í brasi í fyrstu leikjunum á eftir EM," sagði Úlfur.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir