„Ég er mjög ánægður og við spiluðum leikinn eins og ég vildi. Við spiluðum taktíst rétt og notuðum hraðann okkar. Við getum ennþá bætt leik okkar samt sem áður" sagði Arsene Wenger eftir 3-0 sigur Arsenal á Chelsea í dag.
Francis Coquelin fór meiddur af velli í leiknum en Wenger var ánægður með hvernig Granit Xhaka kom inn í hans stað.
Francis Coquelin fór meiddur af velli í leiknum en Wenger var ánægður með hvernig Granit Xhaka kom inn í hans stað.
„Við misstum Coquelin af velli en Xhaka kom vel inn í þetta. Coquelin er að glíma við sömu meiðsli og á síðustu leiktíð, vonandi verður hann ekki eins lengi frá."
Hann hrósaði svo hafsenta pari sínu í leiknum.
„MIðverirnir okkar voru svo stórkostlegir."
Athugasemdir