Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 24. september 2017 13:03
Magnús Már Einarsson
Byrjunarlið Stjörnunnar og Vals: Þrjár breytingar hjá Val
Sindri Björnsson (til hægri) kemur inn fyrir Hauk Pál.
Sindri Björnsson (til hægri) kemur inn fyrir Hauk Pál.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmbert er fjarri góðu gamni hjá Stjörnunni.
Hólmbert er fjarri góðu gamni hjá Stjörnunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan fær nýkrýnda Íslandsmeistara Vals í heimsókn í næstsíðustu umferð Pepsi-deildarinnar klukkan 14:00. Stjarnan getur gulltryggt Evrópusæti með sigri en Garðbæingar gætu hins vegar lent í úrslitaleik gegn KR um Evrópusætið í lokaumferðinni ef illa fer í dag.

Hólmbert Aron Friðjónsson er frá keppni eftir höfuðhögg gegn ÍA í síðustu viku. Alex Þór Hauksson kemur inn í liðið í hans stað í dag.

Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Vals, tekur út leikbann í dag. Sindri Björnsson tekur sæti hans í liðinu. Andri Fannar Stefánsson kemur í hægri bakvörðinn fyrir Arnar Svein Geirsson og Andri Adolphsson kemur inn fyrir Dion Acoff.

Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
3. Jósef Kristinn Jósefsson
4. Jóhann Laxdal
7. Guðjón Baldvinsson
8. Baldur Sigurðsson (f)
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson
14. Hörður Árnason
20. Eyjólfur Héðinsson
29. Alex Þór Hauksson

Byrjunarlið Vals:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Einar Karl Ingvarsson
5. Sindri Björnsson
8. Kristinn Ingi Halldórsson
10. Guðjón Pétur Lýðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
17. Andri Adolphsson
20. Orri Sigurður Ómarsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson (f)
23. Andri Fannar Stefánsson
32. Eiður Aron Sigurbjörnsson

Beinar textalýsingar:
14:00 Stjarnan - Valur
14:00 Fjölnir - KR
14:00 Víkingur Ó - FH
14:00 Breiðablik - ÍBV
14:00 KA - Grindavík
14:00 Víkingur R - ÍA
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner