Bakvörðurinn Darko Bulatovic verður ekki meira með KA-mönnum í sumar, hann missir af síðustu tveimur leikjunum. Þetta staðfesti Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, við Fótbolta.net í dag.
Bulatovic kom fyrir tímabilið, en auk þess að spila sem vinstri bakvörður getur hann leyst margar stöður á vellinum. Hann getur einnig spilað sem kantmaður og sem miðvörður.
Bulatovic kom fyrir tímabilið, en auk þess að spila sem vinstri bakvörður getur hann leyst margar stöður á vellinum. Hann getur einnig spilað sem kantmaður og sem miðvörður.
Darko hefur leikið 18 leiki í Pepsi-deildinni í sumar, en hann mun ekki leika fleiri leiki með liðinu á þessu tímabili. Ástæðan fyrir því er sú að það eru veikindi í fjölskyldu hans heima fyrir.
„Faðir hans er búinn að vera að glíma við krabbamein síðustu vikur og hefur hrakað mikið og úr varð að hann fékk að fara heim til að vera til staðar fyrir fjölskyldu sína," sagði Sævar.
Mun Darko koma aftur til KA á næsta tímabili?
„Vonandi, en það er ekki orðið staðfest."
KA er þessa stundina að spila gegn Grindavík. Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir