Paul Lambert, stjóri Aston Villa, hefur greint frá því að félagið geti keypt miðjumanninn Tom Cleverley frá Manchester United í janúar.
Cleverley er á láni frá United og hefur staðið sig vel með liðinu eftir að hafa valdið vonbrigðum á Old Trafford undanfarin tímabil.
Lambert hefur nú staðfest að klásúla geri Aston Villa kleift að kaupa leikmanninn í janúar, en hann verður að vísu samningslaus eftir tímabilið.

,,Við höfum kauprétt á Tom. Við höfum ekki farið í smáatriðin en hann hefur spilað vel," sagði Lambert í dag.
,,Hann var sá eini sem gaf sig allan í leikinn síðasta laugardag (3-0 tap gegn Everton). Hann hefur svo margt fram að færa. Hann er góður náungi, góður atvinnumaður og gerir allt af krafti, meira að segja á æfingum."
,,Hvað sem gerist í janúar mun gerast, rétturinn er til staðar en það eru enn nokkrir mánuðir í þetta. Ég vil bara að hann spili vel hérna og njóti sín, sem hann er að gera."
Athugasemdir