Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. október 2014 10:48
Magnús Már Einarsson
Finnur Orri á leið í FH
Finnur Orri Margeirsson.
Finnur Orri Margeirsson.
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Finnur Orri Margeirsson er að öllum líkindum á leið í FH en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag. KR hefur líklega reynt að krækja í Finn en hann mun líklega enda í FH.

,,FH eru töluvert líklegri en þetta kemur í ljós í dag. Mér líst mjög vel á FH og það er heillandi klúbbur," sagði Finnur Orri við Fótbolta.net í dag.

Greint var frá því í gærkvöldi að Finnur muni yfirgefa uppeldisfélag sitt Breiðablik en hann hefur leikið með liðinu allan sinn feril.

,,Þetta hefur verið mjög erfið ákvörðun undanfarna daga," sagði Finnur um þá ákvörðun að fara frá Blikum.

,,Ég held að það hafi allir gott af því að breyta um umhverfi öðru hvoru. Ég er búinn að vera lengi hjá Breiðabliki og þeir hafa gert allt fyrir mig. Stundum þarf maður nýtt umhverfi og ég held að þetta gæti verið gott skref fyrir alla."
Athugasemdir
banner
banner