Jón Ingason hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við ÍBV.
Jón skrifaði undir samninginn síðdegis í dag en fyrri samningur hans átti að renna út um áramótin.
Jón skrifaði undir samninginn síðdegis í dag en fyrri samningur hans átti að renna út um áramótin.
Þessi 19 ára gamli vinstri bakvörður og kantmaður spilaði tuttugu leiki í Pepsi-deildinni í fyrra.
Jón spilaði sína fyrstu leiki í Pepsi-deildinni árið 2011 en hann á einnig níu leiki að baki með U19 ára landsliði Íslands.
Faðir Jóns er Ingi Sigurðsson sem varð á sínum tíma Íslands og bikarmeistari með ÍBV.
Athugasemdir