Diego Costa, framherji Chelsea, gæti komið að nýju inn í lið Chelsea gegn Manchester United á sunnudag.
Costa hefur verið í basli að undanförnu en hann hefur verið að glíma við meiðsli auk þess sem hann fór á sjúkrahús vegna veikinda.
Þessi 26 ára gamli leikmaður hefur misst af síðustu tveimur leikjum Chelsea en möguleiki er á að hann snúi aftur um helgina.

,,Hann á smá möguleika á að spila um helgina. Við erum að reyna," sagði Jose Mourinho stjóri Chelsea.
Loic Remy verður ekki með vegna meiðsla á nára og því gætu Didier Drogba eða Andre Schurrle byrjað frammi ef Costa verður ekki klár í slaginn.
Athugasemdir