Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. október 2014 19:15
Magnús Már Einarsson
Pellegrini: Aguero getur orðið bestur í heimi
Mynd: Getty Images
Manuel Pellegrini, stjóri Manchester City, telur að Sergio Aguero geti orðið besti leikmaður heims í framtíðinni.

Hinn 26 ára gamli Aguero skoraði fernu gegn Tottenham um síðustu helgi og Pellegrini telur að hann geti tekið við af Cristiano Ronaldo og Lionel Messi sem besti leikmaður í heimi í framtíðinni.

,,Ég held að hann hafi alla burði til þess," sagði Pellegrini á fréttamannafundi í dag.

,,Sergio er ungur leikmaður og hann á mörg ár til að bæta sig. Þrjú eða fjögur fleiri ár en aðrir leikmenn. Það veltur á því hvað hann vill gera í framtíðinni."
Athugasemdir
banner
banner