banner
   fös 24. október 2014 18:00
Magnús Már Einarsson
Pires kýldur í hálfleik
Mynd: Getty Images
Robert Pires, fyrrum leikmaður Arsenal, lenti í leiðinlegu atviki í leik þegar hann var að spila með FC Goa gegn Atletico de Kolkata í Ofurdeildinni í Indlandi í vikunni.

Antonio Lopez Habas, þjálfari Atletico de Kolkata, kýldi þá Pires þegar liðin voru á leið til búningsherbergja í hálfleik.

,,Pires segir að þjálfari Atletico hafi kýlt hann og það er skammarlegt," sagði Zico sem þjálfar FC Goa.

,,Ég held að Pires myndi ekki ljúga þessu eða segja eitthvað sem gerðist ekki."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner