Sunnudagskvöldið 16. nóvember verður heldur betur toppslagur í A-riðli í undankeppni EM2016 í knattspyrnu. Þá mætast Tékkland og Ísland á Štruncovy Sady Stadión í Plzen. Bæði þessi lið eru með 9 stig eftir 3 umferðir og leikurinn því gífurlega mikilvægur fyrir bæði lið. Heldur þessi magnaða veisla áfram? Vertu á staðnum og upplifðu þetta beint í æð með Gaman Ferðum og Tólfunni.
Verð
Ferðin kostar 62.900 kr. á mann. Innifalið er flug með WOW air til Prag, rúta til Plzen og rúta frá vellinum í Plzen út á flugvöll eftir leik. Miði á leikinn er ekki innifalin í pakkanum. Samkvæmt nýjum reglum KSÍ þá verða þeir aðilar sem ætla í ferðina að kaupa miðana beint af KSÍ. Ekki er leyfilegt fyrir ferðaskrifstofur að selja miða beint til sinna viðskiptavina. Miði á leikinn kostar 6.000 krónur.
Það eru ekki mörg sæti eftir í þessa ferð þannig að nú þurfa menn að hafa hraðar hendur til að koma með í þessa ævintýraferð.
Nánari upplýsingar um ferðina
Einnig er hægt að hafa samband í síma 560-2000 til að fá nánari upplýsingar.
Athugasemdir