fös 24. október 2014 20:24
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Ujah skoraði sigurmark Köln gegn Werder Bremen
Mynd: Getty Images
Werder 0 - 1 Cologne
0-1 Anthony Ujah ('59 )


Köln lagði Werder Bremen að velli með einu marki gegn engu í þýsku deildinni í kvöld en sigurmarkið kom um miðjan síðari hálfleik.

Anthony Ujah gerði sigurmarkið á 59. mínútu leiksins en leikurinn var afar jafn og hefði getað dottið báðum megin.

Köln náði hinsvegar stigin þrjú og er því liðið nú með 12 stig í níunda sæti á meðan Werder Bremen er í neðsta sætið með 4 stig.

Enn eitt tapið hjá Werder Bremen sem virðist ekki vera að finna sig í byrjun tímabils.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner