U19 ára landsliðsmaðurinn Axel Óskar Andrésson spilaði í gær sinn fyrsta leik með U23 ára liði Reading.
Hinn 18 ára gamli Axel hefur verið á mála hjá Reading síðan 2014 en hann hefur verið lykilmaður í U18 ára liði félagsins.
Hinn 18 ára gamli Axel hefur verið á mála hjá Reading síðan 2014 en hann hefur verið lykilmaður í U18 ára liði félagsins.
Í vetur hefur Axel verið á bekknum í U23 ára liðinu og hann spilaði í gær sinn fyrsta leik í hjarta varnarinnar í 1-1 jafntefli gegn Sunderland.
Axel spilaði með Aftureldingu áður en hann samdi við Reading.
Á dögunum skoraði hann tvö mörk með U19 ára landsliði Íslands í þremur leikjum í undankeppni EM.
Athugasemdir