Kvennalandslið Íslands leikur sinn síðasta leik á Sincere Cup æfingamótinu í Kína í dag þegar liðið mætir Úsbekistan klukkan 08:00 að íslenskum tíma eða 16:00 að kínverskum tíma. Byrjunarlið Íslands er klárt en Berglind Hrund Jónasdóttir markvörður Stjörnunnar byrjar í dag og spilar sinn fyrsta landsleik.
Ísland er með eitt stig á mótinu eftir að gera jafntefli við Kína en tapað fyrir Danmörku.
Úsbekistan er stigalaust en liðið hefur sýnt góða frammistöðu í leikjum sínum gegn Kína og Danmörku. Það verður því erfitt verkefni sem bíður stelpnanna okkar í lokaleiknum en sigur gæti tryggir Íslandi 2. eða 3. sæti mótsins.
Ólíklegt er að leikurinn sé sýndur á netinu þar sem hann er ekki framleiddur fyrir sjónvarp.
Byrjunarliðið er svona:
Berglind Hrund Jónasdóttir (M)
Hólmfríður Magnúsdóttir - Anna Björk Kristjánsdóttir - Sif Atladóttir - Rakel Hönnudóttir
Fanndís Friðriksdóttir - Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir - Dóra María Lárusdóttir - Dagný Brynjarsdóttir (F) - Svava Rós Guðmundsdóttir
Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Athugasemdir