Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 24. október 2016 15:30
Magnús Már Einarsson
Diaby verður frá í fjóra mánuði
Mynd: Getty Images
Abou Diaby, miðjumaður Marseille, er enn ný kominn á sjúkralistann en hann verður frá keppni næstu fjóra mánuðina.

Diaby meiddist á ökkla og fór í aðgerð af þeim sökum.

Leitun er að leikmönnum sem hafa verið óheppnari með meiðsli en Diaby í gegnum tíðina.

Diaby var hjá Arsenal frá 2006 til 2015 en hann meiddist alls 42 sinnum á tíma sínum hjá liðinu.

Sumarið 2015 samdi Diaby við Marseille en hann hefur einungis spilað sex leiki með liðinu síðan þá.
Athugasemdir
banner
banner
banner