Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 24. október 2016 14:00
Magnús Már Einarsson
Mignolet í markinu annað kvöld
Mynd: Getty Images
Simon Mignolet verður í marki Liverpool þegar liðið mætir Tottenham í enska deildabikarnum annað kvöld.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, staðfesti þetta á fréttamannafundi í dag.

Mignolet missti sæti sitt í liði Liverpool í síðasta mánuði en Loris Karius hefur varið mark liðsins að undanförnu.

Mignolet fær sénsinn á morgun en það verður þó ekki til frambúðar að sögn Klopp. Karius er formlega orðinn leikmaður.

„Í augnablikinu erum við með mann númer eitt og það er Loris Karius. Það er staðan. Ég get ekki látið þá vera í vafa," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner