Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 24. nóvember 2014 08:20
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Klopp næsti stjóri Liverpool?
Powerade
Jurgen Klopp hefur oft verið orðaður við ensk félög.
Jurgen Klopp hefur oft verið orðaður við ensk félög.
Mynd: Getty Images
Shaqiri er sagður á óskalista Manchester United.
Shaqiri er sagður á óskalista Manchester United.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það styttist óðum í að félagaskiptaglugginn opni á nýjan leik og ensku blöðin eru alltaf með nóg af vangaveltum í gangi.



Manchester United gæti reynt að skipta á Ander Herrera (25) og Xherdan Shaqiri (23) leikmanni Bayern. (Bild)

Manchester United gæti hætt við að kaupa Radamel Falcao (28) næsta sumar þegar lánssamningur hans rennur út en félagið hefur áhyggjur af meiðslum hans. Þá gæti Robin van Persie (31) einnig verið á förum. (Le Figaro)

Arsenal hefur áhuga á Fabian Schar (22) varnarmanni Basel en hann gæti komið til félagsins í janúar. (Daily Star)

Manchester United og Arsenal eru að berjast um Andy Robertson (20) vinstri bakvörð Hull en hann kostaði einungis 2,85 milljónir punda þegar hann kom frá Dundee í sumar. (Daily Express)

Roberto Martinez, stjóri Everton, vill fá Shaun Maloney (31) frá sínum fyrrum félögum í Wigan. (Daily Mail)

Lucas Leiva (27) gæti farið frá Liverpool til Napoli í janúar en þar er Rafael Benitez við stjórnvölinn. (Daily Star)

Mauro Icardi (21), framherji Inter, gæti farið til Chelsea eða Liverpool á 28 milljónir punda næsta sumar. (Daily Express)

Liverpool ætlar að fá Jurgen Klopp þjálfara Borussia Dortmund til að taka við af Brendan Rodgers. (Daly Express)

Rodgers viðurkennir að starf sitt sé í hættu eftir slaka byrjun á tímabilinu. (Daily Mirror)

Manuel Pellegrini, stjóri Manchester City, telur að Pep Guardiola eigi að taka við liði í ensku úrvalsdeildinni einn daginn. (Daily Mail)

Roberto Martinez telur að Romelu Lukaku (21) geti orðið besti framherji í heimi. (Liverpool Echo)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner