Alvaro Arbeloa, leikmaður Real Madrid á Spáni, er gæðablóð en eftir 0-4 sigur liðsins á Eibar þá gaf hann dreng með Downs-heilkenni treyjuna sína.
Arbeloa lék allan leikinn í sigrinum á Eibar en eftir leikinn ákvað hann að gefa dreng með Downs-heilkenni treyjuna.
Drengurinn er stuðningsmaður Eibar en Arbeloa kastaði treyjunni til hans en hún lenti bakvið varamannaskýlið.
Öryggisvörður á svæðinu hjálpaði Arbeloa og náði í treyjuna og komst hún því í hendur drengsins.
Hægt er að sjá myndband af þessu hér fyrir neðan.
Athugasemdir