Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 24. nóvember 2014 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Leikmaður Everton með ótrúlegt aukaspyrnumark
Mynd: Getty Images
Enska U18 ára landsliðið hafði betur gegn því pólska er liðin mættust í æfingaleik í Póllandi í síðustu viku.

Heimamenn komust yfir snemma leiks en Englendingar voru snöggir að jafna og var staðan 1-1 í hálfleik.

Það var snemma í síðari hálfleik sem Ryan Ledson, leikmaður Everton, skoraði ótrúlegt mark beint úr aukaspyrnu til að koma gestunum yfir.

Markið magnaða má sjá hér fyrir neðan en Englendingar bættu tveimur mörkum við eftir aukaspyrnumarkið og unnu 4-1.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner