Caleb Sturgis, sem spyrnir fyrir ruðningslið Miami Dolphins í NFL-deildinni, ætlaði heldur betur að vera svalur er hann reyndi Rabonaspyrnu í nótt en hún klikkaði hjá honum.
Miami Dolphins tapaði fyrir Denver Broncos, 36-39 en Sturgis ákvað að hlaða í Rabonaspyrnu sem þekkist í knattspyrnunni.
Erik Lamela skoraði fyrir Tottenham úr Rabonaspyrnu fyrir nokkrum vikum síðan og ætlaði Sturgis að athuga hvort hann gæti notað spyrnuna í NFL-deildinni en hægt er að staðfesta að svo er ekki.
Bandaríkjamenn virtust afar hrifnir af þessu uppátæki hans hinsvegar.
Hægt er að sjá myndband af þessu hér fyrir neðan.
Athugasemdir