Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. nóvember 2015 22:43
Jóhann Ingi Hafþórsson
Bellerin: Erum að spila fyrir lífi okkar
Hector Bellerin í leiknum í kvöld.
Hector Bellerin í leiknum í kvöld.
Mynd: Getty Images
Hector Bellerin, hægri bakvörður Arsenal var ánægður eftir 3-0 sigur sinna manna gegn Dinamo Zagreb í kvöld en Arsenal varð að vinna leikinn til að eiga möguleika á að komast í 16-liða úrslit keppninnar.


Næsti leikur liðsins er gegn Olympiakos en þá er sama sagan, liðið verður að vinna.

„Liðið vissi að þetta væri mjög mikilvægur dagur í dag. Allir þurftu að koma og standa og þeir gerðu það."

„Nú erum við að spila fyrir lífi okkar. Liðið er að sýna að það hefur mikil gæði og það skapar mikið."

„Þegar við höfum fengið alla leikmennina til baka, þá verðum við að berjast um allt," segir Bellerin sem hefur verið frábær á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner