Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 24. nóvember 2015 18:52
Alexander Freyr Tamimi
Blanc: Einstakt fyrir Zlatan
Zlatan keppir í Malmö á miðvikudag.
Zlatan keppir í Malmö á miðvikudag.
Mynd: Getty Images
Laurent Blanc, þjálfari Paris Saint-Germain, viðurkennir að það verði einstakt fyrir Zlatan Ibrahimovic að mæta uppeldisfélaginu Malmö í borginni sem hann ólst upp í þegar liðin mætast í Meistaradeildinni í vikunni.

Zlatan spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Malmö árið 1999 og hefur síðan þá stimplað sig inn sem einn besta framherja sögunnar. Á miðvikudag snýr hann á æskuslóðir og Blanc viðurkennir að það sé mögnuð upplifun fyrir sænska landsliðsmanninn.

„Auðvitað verður þetta stór leikur fyrir Zlatan. Við vissum að þessi dráttur myndi skila sér í tveimur frábærum og sérstökum leikjum fyrir hann. Við sjáum Zlatan á hverjum degi og vitum að hann er manneskja en ekki vél," sagði Blanc.

„Auðvitað er frábært fyrir hann að fá þetta tækifæri og við skiljum að þetta er óraunverulegt fyrir hann, en við stefnum að því að sigra. Við berum virðingu fyrir Malmö en við viljum vinna."
Athugasemdir
banner
banner