Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. nóvember 2015 11:29
Magnús Már Einarsson
Coutinho gæti spilað með Liverpool um næstu helgi
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur staðfest að Philippe Coutinho gæti náð sér af meiðslum fyrir leik liðsins gegn Swansea á sunnudag.

Coutinho meiddist aftan í læri í 4-1 sigrinum á Manchester City á laugardag.

Coutinho fór af velli á 63. mínútu og stuðningsmenn Liverpool höfðu áhyggjur af meiðslunum.

Skoðun í gærkövldi leiddi í ljós að meiðslin eru ekki alvarleg.

Coutinho verður ekki með gegn Bordeaux í Evrópudeildinni á fimmtudag en ágætis líkur eru á að hann jafni sig fyrir leikinn gegn Swansea.
Athugasemdir
banner
banner
banner