Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 24. nóvember 2015 10:37
Magnús Már Einarsson
Umboðsmaður: Ronaldo endar ferilinn hjá Real Madrid
Mynd: Getty Images
Jorge Mendes, umboðsmaður Cristiano Ronaldo, segir að leikmaðurinn muni enda feril sinn hjá Real Madrid.

Hinn þrítugi Ronaldo er sífellt orðaður við PSG sem og endurkomu til Manchester United.

Mendes segir hins vegar að Ronaldo sé ekki að fara neitt.

„Það er ómögulegt," sagði Mendes aðspurður hvort Ronaldo sé á förum.

„Hann mun enda feril sinn hjá Real Madrid."
Athugasemdir
banner
banner
banner