Jamie Vardy segir að það sé ánægjulegt að spila með Leicester þessa dagana.
Framherjinn er sá heitasti í enskum fótbolta í dag en hann jafnaði á dögunum met Ruud van Nisterlrooy með því að skora í tíu leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni.
Hann hefur verið orðaður við lið í Evrópu en hann er ánægður eins og er hjá Leicester.
„Þetta snýst allt um að vinna vel og leikmennirnir í kringum mig eru að koma mér í stöður þar sem ég get skorað mörk, það er svo einfalt," sagði hann í viðtali við Sky.
„Það er mjög ánægjulegt að spila fyrir liðið. Við vissum ekki við hverju við áttum að búast á fyrstu leiktíðinni í úrvalsdeildinni. Hún er hraðari og sterkari. Sjálfstraustið okkar er mjög mikið þessa stundina en við höldum okkur á jörðinni."
Athugasemdir