Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. nóvember 2015 23:06
Jóhann Ingi Hafþórsson
Wenger: Aldrei séð Özil svona mikið inni í teig
Þessi skemmtilega mynd var tekin í kvöld.
Þessi skemmtilega mynd var tekin í kvöld.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal var sáttur eftir 3-0 sigur lærisveina sinna gegn Dinamo Zagreb á Emirates vellinum í kvöld.

Arsenal lék mjög vel í leiknum og vann sannfærandi sigur.

Liðið leikur nú úrslitaleik við Olympiakos, í næstu umferð, um sæti í 16 liða úrslit keppninnar.

„Leikurinn gegn Olympiakos virðist ætla að verða mjög áhugaverður, við eigum allavega möguleika. Mesut Özil var frábær í fyrri hálfleik, hann er kominn á bragðið í markaskorun."

Özil hefur komið að ellefu mörkum í síðustu níu leikjum sínum.

„Ég hef aldrei séð Özil svona mikið inni í teig eins og í síðustu leikjum."

„Við viljum ekki vera i Evrópudeildinni, við ætlum að gera allt til að vera með í Meistaradeildinni," sagði Frakkinn.
Athugasemdir
banner
banner