„Ég er mjög ánægð," sagði Elín Metta Jensen eftir að hafa skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Val í dag.
Landsliðskonan Elín Metta var næstmarkahæst í Pepsi-deildinni í sumar með sextán mörk en hún rifti samningi sínum við félagið á dögunum á meðan hún var að skoða möguleika sína. Hún ákvað að lokum að endurnýja aftur við Hlíðarendarfélagið.

„Mig langaði að endurskoða ákveðin atriði í samningnum og sjá hvernig framtíðin yrði hjá félaginu og mér líst mjög vel á komandi tíma. Ég hafði enga ástæðu til að fara annað."
„Það voru einhver félög sem reyndu að hafa samband og ég var tilbúin að hlusta á það, en það sem Valur hafði að bjóða fannst mér mest spennandi," segir hún.
Pétur Pétursson er tekinn við Val og Elín, sem hefur lengi verið hjá félaginu, er mjög sátt með hann.
„Ég hef allt gott um hann að segja af því sem ég hef kynnst honum. Ég hlakka til samstarfs."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Sjá einnig:
Hallbera í Val (Staðfest) - Elín og Mist framlengja
Athugasemdir