Dregið var í undankeppni EM 2019 hjá U19 kvenna í morgun, en Ísland var dregið í riðil með Belgíu, Wales og Armeníu.
Riðillinn verður leikinn í Armeníu 2.-8. október 2018 og er liður í undankeppni EM 2019, en úrslitakeppnin verður leikin í Skotlandi.
Einnig var dregið í undankeppni EM 2019 hjá U17 kvenna í morgun, en Ísland var þar dregið í riðil með Englandi, Azerbaijan og Moldavíu.
Riðillinn verður leikinn í Moldavíu dagana 19.-25. september 2018 og er liður í undankeppni EM 2019, en úrslitakeppnin verður leikin í Búlgaríu.
Athugasemdir