Jermain Defoe er mættur til Englands til að ákvarða framtíð sína áður en félagaskiptaglugginn opnar í næstu viku.
Líklegast er að hann muni ganga til liðs við Queens Park Rangers, en Defoe er núna leikmaður Toronto FC í MLS deildinni.
Framherjinn vill þó snúa aftur í ensku deildina og er Toronto tilbúið að láta hann fara. Vill félagið helst selja hann frekar en að lána hann.

Defoe heillast af QPR þar sem hann gæti starfað með Harry Redknapp á ný. Framherjinn hefur starfað undir stjórn Redknapp hjá West Ham, Portsmouth og Tottenham.
Athugasemdir