Ensku úrvalsdeildarfélögin Everton og Sunderland vilja bæði fá hollenska varnarmanninn Virgil van Dijk frá Glasgow Celtic í Skotlandi.
Van Dijk, sem er 23 ára gamall, gekk til liðs við Celtic frá Groningen í Hollandi sumarið 2013 en hann hefur verið í hollenska landsliðshópnum að undanförnu.
Celtic vill ekki missa Van Dijk frá félaginu en hann hefur verið lykilmaður í því frá því hann kom.
Everton og Sunderland vilja bæði fá Van Dijk í janúar en hann er metinn á 10 milljónir punda.
Athugasemdir