Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mið 24. desember 2014 21:00
Brynjar Ingi Erluson
Gianfranco Zola tekinn við Cagliari (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Cagliari í Seríu A hefur ráðið Gianfranco Zola sem næsta þjálfara liðsins en Zdenek Zeman var látinn taka poka sinn á dögunum.

Zola, sem er 48 ára gamall, hefur ekki verið í þjálfunarstarfi í meira en ár en síðast stýrði hann Watford á Englandi.

Pierluigi Casiraghi verður Zola til aðstoðar en hann var einmitt á mála hjá Chelsea ásamt Zola er þeir spiluðu íþróttina.

Zola á eftir að aðlagast fljótt en hann spilaði síðustu tvö árin á ferlinum hjá Cagliari áður en hann lagði skóna á hilluna.
Athugasemdir
banner
banner