Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 24. desember 2014 14:20
Brynjar Ingi Erluson
Lahm: Ronaldo á líka skilið að vinna Ballon d'Or
Mynd: Getty Images
Philipp Lahm, fyrirliði Bayern München í Þýskalandi, segir að Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, eigi líka skilið að vinna verðlaunin sem besti leikmaður heims.

Cristiano Ronaldo, Manuel Neuer og Lionel Messi eru tilnenfndir til verðlaunanna sem besti leikmaður heims en Neuer lyfti heimsmeistaratitlinum með þýska landsliðinu í sumar og hefur verið besti markvörður heims síðustu ár.

,,Ég myndi elska það ef Þjóðveri myndi vinna verðlaunin sem besti leikmaður heims en við megum ekki taka því sem sjálfsögðu þar sem Cristiano Ronaldo á einnig skilið að vinna þau," sagði Lahm.

,,Það er ekkert óréttlæti í því ef Neuer vinnur ekki;" sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner