Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool á Englandi, segist opinn fyrir því að fá leikmenn í janúar en glugginn opnar eftir rúmlega viku.
Liverpool eyddi háum fjárhæðum í sumar í leikmenn en liðið fékk leikmenn á borð við Mario Balotelli, Adam Lallana, Dejan Lovren og Emre Can.
Liðinu hefur ekki gengið sem best á þessari leiktíð en félagið hafnaði í öðru sæti á síðustu leiktíð á meðan það situr í tíunda sæti sem stendur.
,,Það verður alltaf eitthvað slúður í gangi. Ef það er möguleiki á að styrkja okkur þá skoðum við það en við verðum að finna réttu leikmennina," sagði Rodgers.
Athugasemdir