mið 24. desember 2014 22:59
Brynjar Ingi Erluson
Neuer: Ronaldo og Messi eru með forskot á mig
Manuel Neuer
Manuel Neuer
Mynd: Getty Images
Manuel Neuer, markvörður Bayern München í Þýskalandi, segir að Cristiano Ronaldo og Lionel Messu, séu með forskot á hann í kapphlaupinu um Ballon d'Or verðlaunin.

Neuer hefur verið magnaður síðustu ár með Bayern og þýska landsliðinu en hann var heimsmeistari með Þýskalandi í sumar og vann þá flest allt sem hægt er að vinna með Bayern.

Hann er tilnefndur ásamt Cristiano Ronaldo og Lionel Messi í ár en hann telur þá vera með forskot á hann þar sem þeir eru orðnir að vörumerki og vel markaðssettir.

,,Ég er ánægður með að vera tilnefndur. Hinir tveir leikmennirnir eru vörumerki um allan heim og það er kannski ástæða þess að þeir eru með forskot á mig," sagði Neuer.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner