Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 24. desember 2014 08:00
Alexander Freyr Tamimi
Ramos: Real Madrid hefur endurheimt virðingu annarra
Sergio Ramos.
Sergio Ramos.
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid, er virkilega ánægður með árið 2014 og þann frábæra árangur sem liðið náði.

Madrídingar urðu Evrópumeistarar og heimsmeistarar félagsliða, og unnu auk þess spænska konungsbikarinn og ofurbikarinn.

,,2014 hefur verið frábært ár. Ekki bara út af bikurunum, heldur hvernig við unnum þá. Ancelotti nær því besta úr hverjum leikmanni," sagði hann við heimasíðu félagsins.

,,Liðið hefur komist aftur á þann stall sem það féll af. Virðingin sem allir báru fyrir Real Madrid áður er komin aftur."

,,Það var einstakt að vinna tíunda Evrópumeistaratitilinn. Ég er virkilega stoltur af því að hafa skorað mark sem hjálpaði okkur að skrá okkur á spjöld sögunnar."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner