Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 24. desember 2014 20:17
Brynjar Ingi Erluson
,,Ronaldo á skilið Ballon d'Or verðlaunin"
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos, leikmaður Real Madrid á Spáni, segir að Cristiano Ronaldo eigi skilið að vinna verðlaunin sem besti leikmaður heims.

Manuel Neuer, Cristiano Ronaldo og Lionel Messi eru allir tilnefndir til verðlaunanna sem besti leikmaður heims en verðlaunin verða afhent í byrjun janúar.

Ronaldo er talinn líklegastur til þess að vinna verðlaunin en Manuel Neuer, markvörður Bayern, átti einnig frábært ár og varð meðal annars heimsmeistari með þýska landsliðinu.

,,Cristiano á skilið að vinna verðlaunin. Hann er fæddur sigurvegari og hatar að tapa leikjum. Hann vill vinna allt og sem vinur hans þá veit ég að ég yrði ánægður fyrir hans hönd," sagði Ramos.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner