Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. desember 2014 18:00
Magnús Már Einarsson
Gleðileg jól!
Mynd: Fótbolti.net
Fótbolti.net óskar landsmönnum gleðilegra jóla og við vonum að þið hafið það sem allra best um hátíðirnar.

Fréttaþjónusta verður að sjálfsögðu á Fótbolta.net yfir allar hátíðirnar eins og hvern annan dag ársins. Menn geta því komið hingað inn í dag jafnt sem aðra daga og séð það helsta sem er að gerast í boltanum.

Mikið verður um að vera um jólin á Englandi en enska úrvalsdeildin tekur sér ekkert jólafrí eins og flestar aðrar deildir og er leikið þétt yfir jólin þar. Heil umferð er á annan í jólum og á sunnudag eru níu leikir sem og einn leikur á mánudag. Þá er leikið aftur á nýársdag.

Svo má ekki gleyma því að það styttist í að janúarglugginn í félagaskiptum opnist en það sést best á því að slúðurmiðlarnir ytra eru þegar farnir að slúðra um hina og þessa leikmenn og hvert þeir muni leggja leið sína.

Hafið það gott og njótið jólanna.
Athugasemdir
banner
banner