Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 24. desember 2014 16:07
Brynjar Ingi Erluson
Sunderland í viðræðum við Liverpool um Borini
Fabio Borini í leik með Liverpool
Fabio Borini í leik með Liverpool
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Sunderland er í viðræðum við Liverpool um kaup á Fabio Borini en Graeme Bailey hjá Goal.com greinir frá þessu.

Borini hefur verið í varahlutverki hjá Liverpool á þessari leiktíð en hann var á láni hjá Sunderland á síðustu leiktíð.

Hann var nálægt því að ganga í raðir Sunderland í sumar og höfðu félögin komist að samkomulagi um leikmanninn en hann hafnaði Sunderland og ákvað að taka slaginn með Liverpool.

Hann hefur fengið fá tækifæri með Liverpool á þessari leiktíð þrátt fyrir að framherjar liðsins hafi ekki sýnt sparihliðarnar en svo virðist sem hann sé á leið til Sunderland í janúar.

Liðin eru komin aftur í viðræður um hann en Graeme Bailey, blaðamaður Goal.com, greinir frá þessu en hann var áður hjá Sky Sports.
Athugasemdir
banner
banner
banner