Xavi, liðsfélagi Luis Suarez hjá Barcelona, er virkilega ánægður með framherjann og er sannfærður um að hann muni raða inn mörkum fyrir félagið.
Þá er Xavi á því að Úrúgvæinn hafi fengið allt of harða refsingu fyrir að bíta Giorgio Chiellini á HM síðasta sumar, en Suarez fékk langt leikbann.
Þá er Xavi á því að Úrúgvæinn hafi fengið allt of harða refsingu fyrir að bíta Giorgio Chiellini á HM síðasta sumar, en Suarez fékk langt leikbann.
,,Þetta var virkilega ósanngjarnt. Ef hann þurfti að fá refsingu fyrir þetta, þá er hann búinn að afplána hana, en ekki taka það af honum hversu góður íþróttamaður hann er," sagði Xavi.
,,Ég hef séð olnbogaskot sem eru ætlað að valda mun meiri skaða en þetta. Hvort er verra? Hvort hefur verri afleiðingar?"
,,Eini munurinn er sá að þú veist að bit er viljaverk, en með tæklingar geturðu sært menn mun verr þó þú ætlaðir þér að ná boltann."
Athugasemdir