Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   sun 25. janúar 2015 20:41
Alexander Freyr Tamimi
Bjössi Hreiðars: Rauða spjaldið var djók
Sigubjörn Hreiðarsson.
Sigubjörn Hreiðarsson.
Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson
Sigurbjörn Hreiðarsson, annar þjálfari Vals, var að vonum svekktur eftir 3-2 tap sinna manna gegn Leikni í Reykjavíkurmótinu í dag.

Valsmenn voru manni færri eftir að Ragnar Þór Gunnarsson fékk að líta rautt spjald strax á 15. mínútu og fannst Sigurbirni liðið spila ágætlega á tíu mönnum.

,,Hvað vorum við, 75 eða 80 mínútur einum færri? Það var bara fínt. Strákarnir voru í skipulagi og stóðu sig vel í því, en við klúðruðum þessu í restina," sagði Sigurbjörn við Fótbolta.net.

,,Það var ágætis hiti í þessu og mikil læti. Mér fannst smá vesen á Leikni dómara, en það er eins og það er. Menn eiga misgóða daga í þessu."

,,Mér fannst við eiga góðan dag þrátt fyrir allt, við vorum að vísu of aftarlega í seinni hálfleik, en það var óþarfi að tapa þessu."


Aðspurður hvað honum fannst um rauða spjaldið sem Ragnar fékk sagði Sigurbjörn: ,,Mér fannst ekkert um það, mér fannst það bara djók. Gerði Ragnar eitthvað? Ég sá þetta ekki, en hann fullyrðir að hann hafi ekki gert neitt. Ég held að þetta hafi bara verið grín, bara leyfa þessu að halda áfram maður."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner