Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 25. janúar 2015 09:00
Elvar Geir Magnússon
Samuel Eto'o færist nær Sampdoria
Samuel Eto'o.
Samuel Eto'o.
Mynd: Getty Images
Samuel Eto'o er að ganga í raðir Sampdoria á Ítalíu frá enska liðinu Everton.

Ítalska félagið segir að þessi 33 ára sóknarmaður sé að færast nær en hann hefur skorað fjögur mörk í öllum keppnum fyrir Everton á þessu tímabili.

Eto'o lék áður með Real Madrid, Mallorca, Barcelona, Inter Milan, Anzhi Makhachkala og Chelsea.

Sampdoria er sem stendur í fjórða sæti ítölsku A-deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner