Samuel Eto´o er genginn í raðir Sampdoria eftir stutt stopp hjá Everton.
Eto´o gekkst undir læknisskoðun hjá ítalska félaginu í gær og staðfestir á Twitter síðu sinni að hafa staðist hana. Eto´o verður formlega kynntur fyrir stuðningsmönnum félagsins fyrir leik Sampdoria og Palermo í Serie A í dag.
Sampdoria er í 5.sæti deildarinnar og er stefnan sett á Meistaradeildarsæti en fyrr í mánuðinum keypti félagið Luis Muriel frá Udinese og hefur sóknarlína liðsins því styrkst gífurlega í félagsskiptaglugganum.
Þessi kamerúnska goðsögn staldraði stutt við hjá Everton en Eto´o er orðinn 33 ára og á glæstan feril að baki sem inniheldur lið á borð við Barcelona, Inter og Chelsea.
Successful Medical. Thank you Dr Parfait Ondo. Ready for a new Challenge!!! pic.twitter.com/gvzjv4J6di
— Samuel Eto'o (@setoo9) January 25, 2015
Athugasemdir